Þú þarft ekki að hafa ofurkrafta til að vera ofurhetja!

Flying Tiger Copenhagen mun safna peningum til styrktar La barna di Styrktarfélags krabbameinssjúkra, í öllum verslunum okkar, fjórum sinnum á þessu ári.

Auk þess að safna peningum, höfum við einnig gripið til ýmissa aðgerða til viðbótar þetta árið:

  • Við höfum breytt sumum af okkar vinsælustu vörum í Ofurhetjuvörur. Hluti af ágóða þeirra rennur beint til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Ofurhetjuvörurnar eru merktar og auglýstar sérstaklega í verslunum okkar, þannig að viðskiptavinir okkar eru meðvitaðir um styrkinn þegar þau versla Ofurhetjuvörur.

  • Í hvert sinn sem við höldum "Store Run" (tæmum verslunina á 60 sekúndum) jöfnum við andvirðið af því sem viðskiptavinir ná að safna sér og gefum upphæðina til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.

  • Við gefum reglulega vörur til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, sem þau nota í starfi sínu með skjólstæðingum sínum.

Hjálpaðu okkur að berjast gegn krabbameini.

Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna styður við börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra, bæði fjárhagslega og félagslega, á meðan á meðferð stendur og eftir meðferð. Mörg börn glíma við síðbúnar afleiðingar af krabbameinsmeðferðinni löngu eftir að henni lýkur.

Stuðningurinn felst m.a. í því að greiða fyrir heilsurækt, bæði andlega og líkamlega, svo sem sálfræðiþjónustu og sjúkraþjálfun. Félagið býður upp á hópastarf fyrir mömmur, pabba, unglinga og börn, auk þess að standa fyrir félagsstarfi, eins og sumarhátíð, leikhúsferðum og jólaballi. Auk þess rekur félagið hvíldaríbúðir fyrir fjölskyldur krabbameinsveikra barna og íbúðir sem fólk af landsbyggðinni getur nýtt sér á meðan meðferð barnsins stendur.

Félagið fær engan beinan opinberan stuðning og fjármagnar starf sitt með framlögum frá félögum, fyrirtækjum og einstaklingum.

Með sameiginlegu átaki getum við skipt sköpum fyrir börn sem berjast við krabbamein. Upphæðin sem safnast rennur beint til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.

FSC icon
Foreste sostenibili

Quando scegliete prodotti certificati FSC®, sostenete l'uso responsabile delle foreste del mondo e contribuite a prendervi cura degli animali e delle persone che vi abitano. Cercate il marchio FSC sui nostri prodotti e leggete di più su flyingtiger.com/fsc